
Vara sem þolist vel og hentar allri fjölskyldunni
PreCold® er CE-merkt lækningatæki.
PreCold® munnúði hefur staðbundna, tímabundna verkun á yfirborð slímhimnu og hentar fullorðnum og börnum eldri en fjögurra ára. Frá árinu 2013 hefur munnúðinn verið notaður í nálægt 50 milljón skömmtum og er seldur í fleiri en 11 löndum. Virkni og öryggi er stutt af klínískum rannsóknum og könnunum meðal viðskiptavina.
Svona notar þú PreCold ® við kvefeinkennum
Byrjaðu að nota PreCold® um leið og þú verður vör/var við einkenni kvefs (til dæmis: eymsli í hálsi, lasleikatilfinningu eða ertingu í hálsi). Haltu notkun áfram þar til einkennin hverfa.
Leiðbeiningar um notkun við kvefeinkennum:
Opnaðu munninn og beindu munnúðastútnum að kokinu.
Þrýstu dælunni niður og úðaðu tvisvar sinnum (1 skammtur) á tveggja klukkustunda fresti allt að 6 sinnum á dag á meðan þú átt á hættu að smitast af kvefveiru.


Svona notar þú PreCold® fyrirbyggjandi
Þú getur notað PreCold® í fyrirbyggjandi skyni ef þú ert ekki með kvefeinkenni en átt á hættu að smitast af kvefveiru, t.d. ef einhver sem þú umgengst er kvefaður.
Leiðbeiningar um fyrirbyggjandi notkun:
Opnaðu munninn og beindu munnúðastútnum að kokinu.
Þrýstu dælunni niður og úðaðu tvisvar sinnum (1 skammtur) á tveggja klukkustunda fresti allt að 6 sinnum á dag á meðan þú átt á hættu að smitast af kvefveiru.
Svona verkar PreCold®
• PreCold® munnúði er einstakur, hann verkar gegn orsökum kvefs, þ.e.a.s sjálfri kvefveirunni. PreCold® munnúði er auðveldur í notkun og verkar strax með því að mynda varnarhjúp.
• PreCold® munnúði dregur úr hættu á kvefi og getur stytt sjúkdómsferlið ef hann er notaður á frumstigi smits.
• PreCold® munnúði er notaður í munnhol og kok þar sem kvefveiran tekur sér bólfestu og fjölgar sér. PreCold® munnúði myndar varnarhjúp yfir slímhimnuna. Vörnin verkar fyrir tilstilli osmósu á kvefveirur, fangar þær og kemur í veg fyrir að þær sýki frumur og hjálpar þannig líkamanum við að losa sig við þær á náttúrulegan hátt.


Uppgötvun verndandi ensíms úr íshafinu
Á áttunda áratug síðustu aldar tók íslenski vísindamaðurinn Jón Bragi Bjarnason prófessor eftir því að starfsfólk í fiskvinnslu var með óvenju heilbrigða og mjúka húð á höndunum. Þar sem fólkið starfaði við að hreinsa fisk hefði mátt halda að húðin á höndunum hlyti að vera sprungin og fleiðruð. Var eitthvað í fiskinum sem verkaði verndandi? Svarið var já. Rannsóknarhópurinn gat sýnt fram á að í sumum kuldaaðlöguðum sjávarlífverum er ensím með góða verndandi eiginleika. Þróunarvinnan leiddi svo smám saman til alþjóðlegs einkaleyfis á kuldaaðlagaða sjávarensíminu trypsíni. Ensímið er unnið sem hliðarafurð við þorskvinnslu og veldur því ekki álagi á vistkerfi sjávar.
Árið 2007 var sænska líftæknifyrirtækið Enzymatica stofnað til að þróa og selja vörur sem innhalda sjávarensímið.
PreCold® minnkar veirumagn og fækkar kvefdögum um helming¹
COLDPREV er tvíblind samanburðarrannsókn með lyfleysu þar sem 46 heilbrigðir sjálfboðaliðar voru smitaðir með kvefveiru (rhinoveiru 16). Helmingur þátttakenda var meðhöndlaður með PreCold® og helmingur fékk lyfleysu. Greiningin og gröfin eru byggð á þeim fjölda einstaklinga sem hægt var að staðfesta að hefðu smitast af veirunni eða sem voru með staðfest einkenni kvefs. Í rannsókninni kom fram tölfræðilega marktæk verkun PreCold®, þ.e.a.s. muninum milli PreCold® og lyfleysu, með tilliti til kvefveirumagns í hálsi (-99%) og fækkunar kvefdaga (-54%), sem samsvarar 3,5 dögum.
Staðfesting
Veggspjald/Úrdráttur: Does ColdZyme reduce upper respiratory tract infection (URTI) in endurance athletes, 3rd European Otolaryngology-ENT Surgery Conf, Oct 2018, London, UK
Framsýn slembuð áhorfsrannsókn sem gerð var í háskólanum í Kent meðal afreksíþróttafólks sem iðkar þolíþróttir eins og þríþraut, maraþon og hjólreiðar. Niðurstöður varðandi afreksíþróttafólkið sem notaði ColdZyme samkvæmt notendaleiðbeiningum voru tölfræðilega marktækt hagstæðari, þar sem kvefdagar voru einungis 7,1 dagur (p<0,038) miðað við samanburðarhópinn þar sem kvefdagar voru 11.

Heildargrein: COLDPREV – A Randomized, Double-Blind, Placebo-Controlled Pilot Clinical Study on ColdZyme® Mouth Spray against Rhinovirus-Induced Common Cold. Oct 2017
COLDPREV, tvíblind samanburðarannsókn með lyfleysu þar sem þátttakendur voru heilbrigðir sjálfboðaliðar, sem sýktir voru (smitaðir) með kvefveiru, sýndi minnkun veirumagns (um meira en 99%) og fækkun kvefdaga um helming (54%), báðar niðurstöðurnar eru tölfræðilega marktækar samanborið við lyfleysu.

Grein: A medical device forming a protective barrier that deactivates four major common cold viruses (Rhinovirus type 1A and type 42, Seasonal Flu virus (H3N2), Respiratory Syncytial Virus, Adenovirus type 2). Nov 2017
In vitro rannsókn var gerð á Microbac, óháðri, viðurkenndri og vottaðri rannsóknarstofu. Rannsóknin sýndi að ColdZyme getur gert meirihluta algengustu kvefveira, sem valda kvefi hjá mönnum, óskaðlegar (rhinoveiru, inflúensuveiru, RS-veiru, adenóveiru). In vitro rannsóknin byggðist á staðlaðri, gildaðri aðferð sem þróuð var til að líkja eftir in vivo umhverfi í munni og koki þar sem veiran tekur sér bólfestu, ræðst inn í frumurnar og orsakar kvef.

Úrdráttur/veggspjald: ColdZyme forms a protective barrier in the throat that deactivates five major common cold viruses (Rhinovirus type 1A and type 42, Seasonal Flu virus (H3N2), Respiratory Syncytial Virus, Adenovirus type 2, Human Coronavirus). Nov 2017
In vitro rannsókn var gerð á Microbac, óháðri, viðurkenndri og vottaðri rannsóknarstofu. Rannsóknin sýndi að ColdZyme getur gert meirihluta algengustu kvefveira, sem valda kvefi hjá mönnum, óskaðlegar (rhinoveiru, inflúensuveiru, RS-veiru, adenóveiru og kórónaveiru). In vitro rannsóknin byggðist á stöðluðum og gilduðum aðferðum sem þróaðar voru til að líkja eftir in vivo umhverfi í munni og koki þar sem veirur taka sér bólfestu, ráðast inn í frumurnar og valda kvefi.

Grein: Evaluation of ColdZyme Mouth Spray against common cold in preschool staff. Oct 2017
Áhorfsrannsókn meðal leikskólakennara með innri samanburði. Veikindadögum vegna kvefs fækkaði úr 7,4 í 4,1 dag á 6 mánaða tímabili miðað við sögulegar upplýsingar. Munurinn var tölfræðilega marktækur.

Úrdráttur: Prevention of upper respiratory tract infection among elderly care personnel and residents at a nursing home. Dec 2016
Áhorfsrannsókn meðal starfsfólks á heimili fyrir aldraða með innri samanburði. Veikindadögum vegna kvefs fækkaði úr 5,2 í 3,7 daga á 5 mánaða tímabili, miðað við sögulegar upplýsingar, sem er tölfræðilega marktækt. 63% þeirra sem fengu samt sem áður kvef fannst það vægara en kvef sem þeir höfðu fengið áður án meðferðar.

Skýrsla um sjúkdómstilvik: Evaluation of ColdZyme® Mouth Spray on prevention of upper respiratory tract infection(s) in a CVID-patient: a case report. Nov 2016
Sjúkdómstilvik hjá ungum einstaklingi með frumkominn ónæmisbrest. ColdZyme dró úr kvefeinkennum og jafnframt afleiddum örveru- og sveppasýkingum í munni og koki.


Fylgiseðill
INNIHALDSEFNI: Glýseról, vatn, þorskatrypsín, etanól (<1%), kalsíumklóríð, trómetamól og mentól. Án sykurs og rotvarnarefna.
Geymsla: PreCold® á að geyma við lægri hita en 25°C. Fyrningardagsetningin á merkimiða vörunnar og umbúðunum á bæði við um óopnaða og opnaða pakkningu. Endingartími er 36 mánuðir frá framleiðsludegi.

Hvað er kvef?
Kvef er algengasti smitsjúkdómurinn. Það orsakast af veirum sem fara inn í frumurnar í slímhimnunni, fyrst og fremst í munnholi og koki. Algeng einkenni eru nefrennsli, nefstífla og og særindi í hálsi. Hósti og höfuðverkur ásamt hita getur einnig fylgt sjúkdómnum. Venjulegt kvef gengur yfirleitt yfir á færri en tíu dögum og að meðaltali fær fólk kvef tvisvar til fjórum sinnum á ári. Börn eru sá hópur sem fær oftast kvef, 5-10 sinnum á ári.
Algengar spurningar
Algengar spurningar um PreCold®

1. Við hvað sjúkdómum er hægt að nota PreCold®?
PreCold® munnúði er ætlaður til notkunar við kvefi annaðhvort í fyrirbyggjandi skyni með því að draga úr hættu á kvefi eða til þess að stytta kveftímann þegar það er notað frá upphafi sjúkdómseinkenna.
2. Hvar er hægt að kaupa PreCold®?
PreCold® fæst í öllum lyfjabúðum, Hagkaup, Fríhöfninni og Saga Shop.
3. Hvernig á að nota PreCold®?
Beindu úðastútnum að kokinu og úðaðu tvisvar sinnum (1 skammtur) á tveggja klst. fresti í fyrirbyggjandi skyni eða þangað til einkennin hverfa.
Við notkun í fyrirbyggjandi skyni má nota munnúðann að hámarki í 30 daga í röð.
4. Getur hver sem er notað PreCold®?
Fullorðnir og börn eldri en fjögurra ára mega nota PreCold® munnúða ef ekki er um að ræða ofurnæmi/ofnæmi fyrir einhverju innhaldsefna hans.
5. Hvernig virkar PreCold® munnúði?
PreCold® munnúði dregur úr hættu á kvefsmiti en hann má einnig nota til þess að stytta sjúkdómstímann ef hann er notaður snemma í sjúkdómsferlinu þegar viðkomandi hefur þegar smitast af kvefveiru. Verkun PreCold® munnúða felst í myndun verndarhjúps yfir slímhúðina í munnholi og koki. Verndarhjúpurinn dregur úr getu veirunnar til þess að bindast frumunum í munnslímhúðinni og valda veikindum.
6. Er PreCold® Lyf?
Nei, Precold® munnúði er CE-merkt lækningatæki sem verkar á þann hátt að hann myndar tímabundið staðbundna verndarhjúp yfir yfirborð slímhimnunnar í munnholi og koki. Öfugt við lyf hefur varan því engin lyfjafræðileg, efnaskiptaleg eða ónæmisleg áhrif.
7. Mega konur nota PreCold® á meðgöngu og þegar þær eru með barn á brjósti?
Engar klínískar rannsóknir hafa verið gerðar á notkun PreCold® á meðgöngu og við brjóstgjöf. Þess vegna skal ávallt leita ráðgjafar hjá lækni fyrir notkun.
Varúðarráðstafanir
• Ekki má nota PreCold® ef um er að ræða ofurnæmi eða ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna.
• Andaðu ekki að þér um leið og þú úðar þar sem það getur valdið skammvinnum astmalíkum einkennum, svo sem hósta og hæsi.
• Hafðu samband við lækni ef þú ert með háan hita eða ef einkennin eru verri en við venjulegt kvef. Þessi einkenni gætu verið af öðrum orsökum.
• Notist að hámarki í 30 daga í röð.
• Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá, til þess að fyrirbyggja slys vegna smárra hluta.