1.1 Tilgangur þessa skjals er að upplýsa um hvernig Enzymatica AB („við“) vinnur með persónuupplýsingar þínar í tengslum við:
Við virðum friðhelgi þína og erum staðráðin í að vernda þær persónuupplýsingar um þig sem við vinnum með. Allar persónuupplýsingar eru unnar í samræmi við almennu persónuverndarreglugerð ESB (GDPR). Hér á eftir er lýsing á því hvernig við söfnum, vinnum með og deilum persónuupplýsingum þínum.
| HVAÐA PERSÓNUUPPLÝSINGAR VERÐA UNNAR? |
Þegar þú heimsækir vefsíðu okkar vinnum við með IP-tölu þína, tungumál vafra, landfræðilegar staðsetningarupplýsingar, dagsetningu og tíma ásamt upplýsingum um hvaða vefsíður þú hefur opnað. Við söfnum persónuupplýsingum beint frá þér. Þú getur sent okkur eða veitt okkur persónuupplýsingar í gegnum samfélagsmiðla. |
| Í HVAÐA TILGANGI VINNUM VIÐ MEÐ PERSÓNUUPPLÝSINGAR ÞÍNAR? |
Persónuupplýsingar þínar eru unnar í þeim tilgangi að gera vefsíðuna aðgengilega fyrir þig og til að þróa og bæta nytsemi hennar. Auk þess getum við notað persónuupplýsingar þínar í markaðstilgangi, t.d. til endurmarkaðssetningar á öðrum vefsíðum. Þar fyrir utan geta verið aðrar ástæður fyrir því að við notum persónuupplýsingar þínar og í þeim tilvikum munum við láta þig vita áður en við látum persónuupplýsingar þínar af hendi. |
| HVER ER LAGAGRUNDVÖLLUR VINNSLU PERSÓNUUPPLÝSINGA ÞINNA? |
Vinnsla persónuupplýsinga þinna byggist á lögmætum hagsmunum okkar af því að tryggja að þú hafir aðgang að vefsíðu sem veitir þér greiðan aðgang að því viðmóti, þeirri virkni og þeim upplýsingum sem þú leitar að. Vinnsla í markaðstilgangi byggist enn fremur á lögmætum hagsmunum okkar af því að markaðssetja vörur okkar. Við hagsmunamat höfum við metið að við höfum lögmæta hagsmuni af því að gera vefsíðuna aðgengilega fyrir þig á notendavænan og skilvirkan hátt og að veita þér auglýsingar byggðar á áhugasviði. Við tryggjum að sú vinnsla sem þetta felur í sér sé nauðsynleg til að ná þessum markmiðum og að hagsmunir okkar vegi þyngra en réttur þinn til að persónuupplýsingar þínar séu ekki unnar í þessum tilgangi. Vinnslustarfsemin er takmörkuð og er að mestu leyti ekki talin hafa áhrif á friðhelgi einkalífsins. Þú átt alltaf rétt á að andmæla þessu mati. Þú getur lesið meira um réttindi þín hér að neðan. Ef við vinnum með persónuupplýsingar sem þú hefur veitt okkur getum við einnig byggt á samþykki þínu eða á því að efna samning. |
| HVER HEFUR AÐGANG AÐ PERSÓNUUPPLÝSINGUM ÞÍNUM? |
Við höfum gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að vernda persónuupplýsingar þínar gegn glötun, óheimilum aðgangi o.s.frv. Fjöldi þeirra sem hafa aðgang að persónuupplýsingum þínum er takmarkaður. Aðeins starfsfólk Enzymatica AB eða þriðja aðila sem við tilgreinum fyrir þér áður en við söfnum persónuupplýsingum þínum og sem þarf að vinna með persónuupplýsingar þínar í þeim tilgangi sem tilgreindur er hér að ofan hefur aðgang að persónuupplýsingunum. |
| HVE LENGI GEYMUM VIÐ PERSÓNUUPPLÝSINGAR ÞÍNAR? |
Persónuupplýsingar þínar eru geymdar mislengi eftir því hvernig þú átt samskipti við vefsíðu okkar. Fyrir fyrirspurnir eða kvartanir er geymslutími upplýsinganna tilgreindur í köflunum hér að neðan. Sumum persónuupplýsingum þínum er þó safnað með vafrakökum og geta þær verið geymdar lengur þar sem hver vafrakaka hefur ákveðinn geymslutíma. Þessa einstöku geymslutíma tiltekinna vafrakakna má finna í vafrakökustefnu okkar. |
Enzymatica notar vafrakökur og sambærilega tækni sem safnar og geymir upplýsingar þegar þú heimsækir vefsíðuna. Þetta er gert svo Enzymatica geti borið kennsl á vafrann þinn og safnað gögnum um notkun þína á vefsíðunni, hvaða síður þú heimsækir og hversu lengi, og borið kennsl á þetta þegar þú kemur aftur svo við getum bætt upplifun þína af vefsíðunni. Þú getur stjórnað stillingum fyrir vafrakökur með því að breyta stillingum vafrans eða með því að nota stillingartól ColdZyme fyrir vafrakökur á vefsíðum ColdZyme. Nánari upplýsingar er að finna í vafrakökustefnu ColdZyme á coldzyme.se.
| HVAÐA PERSÓNUUPPLÝSINGAR VERÐA UNNAR? |
Samskiptaupplýsingar sem veittar eru með fyrirspurninni, svo sem nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer, ásamt persónuupplýsingum sem tengjast fyrirspurninni og koma fram í samskiptum okkar við þig. Við söfnum persónuupplýsingum beint frá þér. |
| Í HVAÐA TILGANGI VINNUM VIÐ MEÐ PERSÓNUUPPLÝSINGAR ÞÍNAR? | Persónuupplýsingar þínar eru unnar til að hægt sé að svara fyrirspurnum og spurningum um vörur o.fl. |
| HVER ER LAGAGRUNDVÖLLUR VINNSLU PERSÓNUUPPLÝSINGA ÞINNA? | Vinnsla persónuupplýsinga þinna byggist á lögmætum hagsmunum okkar af því að geta afgreitt fyrirspurnir. Við hagsmunamat höfum við metið að við höfum lögmæta hagsmuni af því að halda utan um, fylgja eftir og svara fyrirspurnum sem þú hefur sent til að tryggja gæði samskipta þinna við okkur og grípa til aðgerða ef þörf krefur. Við tryggjum að sú vinnsla sem þetta felur í sér sé nauðsynleg til að ná þessum tilgangi og að hagsmunir okkar vegi þyngra en réttur þinn til að upplýsingar þínar séu ekki unnar í þessum tilgangi. Þú átt alltaf rétt á að andmæla þessu mati. Þú getur lesið meira um réttindi þín hér að neðan. |
| HVER HEFUR AÐGANG AÐ PERSÓNUUPPLÝSINGUM ÞÍNUM? | Við höfum gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að vernda persónuupplýsingar þínar gegn glötun, óheimilum aðgangi o.s.frv. Fjöldi þeirra sem hafa aðgang að persónuupplýsingum þínum er takmarkaður. Aðeins starfsfólk Enzymatica AB sem þarf að vinna með persónuupplýsingar þínar í þeim tilgangi sem tilgreindur er hér að ofan hefur aðgang að þeim. |
| HVE LENGI GEYMUM VIÐ PERSÓNUUPPLÝSINGAR ÞÍNAR? | Persónuupplýsingar þínar eru geymdar á meðan málið er til meðferðar. Þeim er eytt um leið og málinu er lokið. |
| HVAÐA PERSÓNUUPPLÝSINGAR VERÐA UNNAR? |
Samskiptaupplýsingar sem veittar eru með kvörtuninni, t.d. nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer. Heilsufarsupplýsingar (aðeins ef þær skipta máli fyrir kvörtunina). Við söfnum persónuupplýsingum beint frá þér eða frá söluaðila/dreifingaraðila ef þú hefur haft samband við hann. Við getum einnig fengið persónuupplýsingar þínar frá lögbæru yfirvaldi í þeim tilvikum þegar kvörtun þín hefur upphaflega verið tilkynnt yfirvaldinu og það hefur hafið athugun á kvörtuninni. |
| Í HVAÐA TILGANGI VINNUM VIÐ MEÐ PERSÓNUUPPLÝSINGAR ÞÍNAR? |
Persónuupplýsingar þínar eru unnar í þeim tilgangi að rannsaka, halda utan um og fylgja eftir hugsanlegum atvikum og kvörtunum ásamt því að grípa til viðeigandi ráðstafana og tilkynna til lögbærra yfirvalda. Tilgangurinn er einnig að tryggja að vörum sem þú hefur kvartað yfir sé skilað til Enzymatica þegar gæðadeild okkar óskar eftir því vegna frekari rannsóknar. |
| HVER ER LAGAGRUNDVÖLLUR VINNSLU PERSÓNUUPPLÝSINGA ÞINNA? | Vinnsla persónuupplýsinga byggist á lagaskyldu okkar sem framleiðanda lækningatækja til að halda utan um, rannsaka og tilkynna atvik og kvartanir samkvæmt reglugerð (ESB) 2017/745 um lækningatæki. |
| HVER HEFUR AÐGANG AÐ PERSÓNUUPPLÝSINGUM ÞÍNUM? |
Við höfum gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að vernda persónuupplýsingar þínar gegn glötun, óheimilum aðgangi o.s.frv. Fjöldi þeirra sem hafa aðgang að persónuupplýsingum þínum er takmarkaður. Aðeins starfsfólk Enzymatica AB sem þarf að vinna með persónuupplýsingar þínar í þeim tilgangi sem tilgreindur er hér að ofan hefur aðgang að þeim. Við deilum ekki persónuupplýsingum þínum með öðrum nema yfirvöld óski eftir því í tengslum við rannsókn kvörtunar. |
| HVE LENGI GEYMUM VIÐ PERSÓNUUPPLÝSINGAR ÞÍNAR? |
Persónuupplýsingar vegna vöruskila eru geymdar þar til rannsókn kvörtunarinnar (eða atviksins) er lokið. Persónuupplýsingar vegna kvartana eru geymdar í allt að eitt ár eftir fyrningardagsetningu viðkomandi vöru. Ef fyrningardagsetning er ekki þekkt skulu persónuupplýsingarnar varðveittar í 4 ár eftir að kvörtunin var skráð. |
5.1 Enzymatica AB, kennitala (sænskt skráningarnúmer) 556719-9244, póstfang Ideon Science Park, 223 70 Lund, Svíþjóð og netfang info@enzymatica.se, er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga þinna. Það þýðir að við berum ábyrgð á að vinna með persónuupplýsingar þínar á réttan hátt og í samræmi við gildandi löggjöf.
5.2 Þú átt rétt á að vita hvaða persónuupplýsingar við vinnum með um þig og þú getur einnig óskað eftir afriti af þeim persónuupplýsingum sem unnið er með. Þú átt rétt á að fara fram á að rangar eða ófullnægjandi persónuupplýsingar séu leiðréttar. Í sumum tilvikum getur þú farið fram á að við eyðum persónuupplýsingum þínum.
5.3 Ef þú hefur spurningar um hvernig við vinnum með persónuupplýsingar þínar ertu velkomin/n að hafa samband við okkur með tölvupósti á info@enzymatica.se, bréfleiðis á heimilisfangið hér að ofan eða í síma +46 (0)46-286 31 00.
5.4 Ef þú hefur andmæli eða kvartanir vegna þess hvernig við vinnum með persónuupplýsingar þínar átt þú rétt á að hafa samband við eða leggja fram kvörtun til viðeigandi persónuverndaryfirvalds.
Ef breytingar verða á vinnslu persónuupplýsinga þinna munum við upplýsa þig um það með því að birta uppfærða útgáfu þessa skjals á vefsíðu ColdZyme.
Til að fá samantekt um öryggi og klíníska virkni (SSCP) fyrir ColdZyme vinsamlegast hafðu samband við okkur á info@coldzyme.se