9 af hverjum 10 notendum kaupa ColdZyme aftur
Umfangsmiklar og óháðar klínískar rannsóknir sýna svart á hvítu að ColdZyme fangar og gerir kvefveirur óvirkar. Niðurstaðan? Sannanlega styttra og vægara kvef.

Fullorðnir og börn eldri en 4 ára mega nota ColdZyme, svo framarlega sem þau eru ekki með ofnæmi eða ofurnæmi fyrir neinu innihaldsefnanna. Hér eru frekari upplýsingar og innihaldslýsing.
Já, það máttu. Engin þekkt áhætta fylgir notkun ColdZyme á meðgöngu eða við brjóstagjöf. Öll innihaldsefni ColdZyme brotna niður í maganum og frásogast ekki í blóðið.
Já. ColdZyme inniheldur glýseról sem bragðast sætt en er ekki sykur og hækkar ekki blóðsykur.
Já, það er í lagi. Hafðu þó í huga að ef þú eða barnið þitt eruð með astma gæti verið vani að anda úðanum að sér. Þessum úða á ekki að anda að sér heldur úða í hálsinn í átt að kokinu.
Já. ColdZyme virkar með því að stytta tímann sem þú ert með kvef og draga úr fjölda kvefeinkenna. Í rannsóknum kom í ljós að þeir sem notuðu ColdZyme þurftu síður á einkennameðferð að halda, en það er í lagi að bæta einhverju við ef þú þarft. Ekkert mælir gegn því að sameina það öðrum vörum. Lestu meira um hvernig ColdZyme virkar í Kvefskólanum okkar.
Nei. ColdZyme er lækningatæki sem virkar staðbundið í munni og koki með því að mynda verndandi rakalag.
ColdZyme inniheldur meðal annars glýseról og ensím (trypsín) úr þorski sem saman mynda verndandi rakalag í kokinu. Varan er laus við sykur, glúten, laktósa og rotvarnarefni. ColdZyme fæst í þremur bragðtegundum, lestu meira hér.
Geymsluþolið er 36 mánuðir frá framleiðsludegi og gildir það einnig um opnaða pakkningu. Fyrningardagsetning er á bæði flöskunni og öskjunni.
Þú notar ColdZyme beint í kokið á eftirfarandi hátt: Opnaðu munninn og beindu stútnum að kokinu. Þrýstu á pumpuna og úðaðu 2 sinnum (1 skammtur) á tveggja klukkustunda fresti, allt að 6 skammta á dag. Notaðu ColdZyme þar til einkennin hafa minnkað. Það má nota ColdZyme í lengri tíma þar sem engin hætta er á ofskömmtun.
Þú nærð bestum árangri ef þú byrjar að nota ColdZyme við fyrstu merki um kvef, til dæmis hálsbólgu eða slappleika. Einnig má nota vöruna seinna í veikindunum. Hér getur þú lesið meira um vísindalegar rannsóknir á virkni ColdZyme.
ColdZyme virkar með því að draga úr veirumagni. Ef þú hefur verið með kvef í nokkra daga og ert þegar með mikið af veirum í líkamanum munt þú líklega samt halda áfram að finna fyrir einkennum, þar sem einkennin tengjast aðallega vörnum líkamans gegn veirunum.
ColdZyme getur komið í veg fyrir að veirumagnið aukist enn frekar, sem getur dregið úr hættu á langvarandi eftirstöðvum. ColdZyme gerir þó mest gagn snemma í veikindunum. Lestu meira um hvernig ColdZyme virkar í Kvefskólanum okkar.
Ef þú borðar eða drekkur fljótlega eftir úðun getur virknin orðið minni. Til að ColdZymeⓇ virki sem best mælum við með að þú bíðir í 20 mínútur eftir úðun áður en þú borðar eða drekkur.
Þú mátt nota ColdZyme eins lengi og þú þarft samkvæmt notkunarleiðbeiningum. Engin tímamörk eru. ColdZyme virkar staðbundið í munni og hálsi og varan hefur gengist undir líffræðilegt mat fyrir langtímanotkun.
Já, það má nota ColdZyme til að veita aukna vörn í kokinu við aðstæður þar sem þú veist að hætta á veirusmiti er mikil, til dæmis í nánu samneyti við margt fólk.
Til að fá samantekt um öryggi og klíníska virkni (SSCP) fyrir ColdZyme vinsamlegast hafðu samband við okkur á info@coldzyme.se